
Grínsmiðjan mætir á Örkina þann 13. nóvember. Þeir Árni, Eggert og Sölvi stíga á svið með afrakstur nokkurra ára í uppistandi og óteljandi klukkutíma af pælingum sem loksins skila einhverju meira en áhyggjum.
Á dagskrá eru hversdagsleg vandræði, vafasamar ákvarðanir og ýmislegt sem hljómar betur sem brandari en það var í raun. Kvöldið fer fram í afslappaðri stemningu þar sem uppistand á íslensku er í aðalhlutverki.

